Menning
- Verkefnisstjórar: Ella Björt Daníelsdóttir Teague, Þorbjörn Broddason
- Viðskiptavinur: Listasafn Íslands
- Skil skýrslu: Mars 2006
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði stutta símakönnun fyrir Listasafn Íslands í febrúar 2006. Svarendur voru valdir með tilviljunaraðferð úr þýði þangað til búið var að tala við 855 manns á aldrinum 18 til 75 ára af landinu öllu. Svarendur voru spurðir hvort þeir vissu hvar Listasafn Íslands væri og hvort þeir hefðu heimsótt safnið á síðastliðnu ári. Auk þess var fólk spurt um ástæður fyrir því að safnið var heimsótt eða ekki heimsótt og hvar upplýsingar um safnið væru fólki aðgengilegar.
- Verkefnisstjórar: Andrea G. Dofradóttir, Kristín Erla Harðardóttir, Friðrik H. Jónsson
- Viðskiptavinur: Edda-útgáfa og Penninn
- Skil skýrslu: Október 2006
Í skýrslunni er greint frá niðurstöðum rýnihópaviðtala meðal 10 til 15 ára barna og unglinga í Reykjavík og nágrenni. Í rýnihópunum var rætt bæði við stelpur og stráka og var megináhersla lögð á að fá innsýn í viðhorf þeirra til lesturs og hvaða sess lestur skipar í daglegu lífi þeirra.
- Verkefnisstjórar: Auður Magndís Auðardóttir, Guðlaug J. Sturludóttir, Heiður Hrund Jónsdóttir
- Viðskiptavinur: Sviðslistahópurinn 16 elskendur
- Skil skýrslu: 6. september 2011
Að kanna viðhorf fólks til ýmissa þátta tengdum leiksýningum og nota niðurstöðurnar til að búa til leiksýningu.
- Verkefnisstjórar: Andrea G. Dofradóttir, Ásdís A. Arnalds, Friðrik H. Jónsson, Guðlaug J. Sturludóttir
- Viðskiptavinur: Mennta- og menningarmálaráðuneytið
- Skil skýrslu: Janúar 2010
Að skoða menningarneyslu Íslendinga. Þátttakendur voru spurðir um þátttöku í mismunandi tegundum menningarviðburða á síðastliðnum 12 mánuðum.
Lesa skýrsluna Íslensk menningarvog: Könnun á menningarneyslu Íslendinga