MARK - Miðstöð margbreytileika og kynjarannsókna

Texti

MARK er vettvangur rannsókna og fræðslu á sviði mannréttinda og mismununar, jafnréttis-, kynja- og margbreytileikafræða í víðum skilningi.

Mynd
Image
"Mynd frá alþjóðaviku HÍ sem sýnir kínverskan nýársdreka innan um fjölda fólks í litríkum klæðnaði"
Tilkynningar og viðburðir

MARK - Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna  var stofnuð þann 21. janúar 2011. Frá upphafi hefur MARK haldið úti reglubundnum fyrirlestrum og tekið þátt í ýmsum samstarfsverefnum. MARK er starfrækt á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands

MARK er vettvangur rannsókna og fræðslu á sviði mannréttinda og mismununar, jafnréttis-, kynja- og margbreytileikafræða í víðum skilningi. Í reglum MARK segir m.a. að hlutverk og markmið miðstöðvarinnar sé að:

  • Sinna og stuðla að rannsóknum á sviði mannréttinda og mismununar, jafnréttis-, kynja- og margbreytileikafræða í víðum skilningi
  • Stuðla að samstarfi við innlent og erlent fræðafólk og rannsóknastofnanir á fræðasviðinu
  • Veita nemum aðstöðu og þjálfun til rannsóknastarfa á fræðasviðinu með verkefnum á vegum miðstöðvarinnar
  • Efla tengsl rannsókna og kennslu á fræðasviðinu
  • Sinna ráðgjöf og rannsóknatengdum þjónustuverkefnum á fræðasviðinu,
  • Efla yfirsýn yfir fræðasviðið, miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna með útgáfu, fyrirlestrum, fræðslufundum, málþingum og ráðstefnum
  • Stuðla að marktækri og markvissri stefnumótun, umræðu og framþróun á sviðinu í samstarfi við opinbera aðila, atvinnulíf og þjóðlíf

Formaður

Stjórn

Forstöðumaður

  • Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur. 

MARK veitir styrki vegna fræðilegra viðburða á sviði margbreytileika

Eftirfarandi eru aðilar í MARK

Háskóli Íslands

Lögbergi við Suðurgötu - stofa 311
101 Reykjavík

Sími: +354 525 4285
Netfang: mark@hi.is