Um setrið

Rannsóknasetur í safnafræðum sinnir rannsóknartengdum þjónustuverkefnum á sviði safnafræða, eflir tengsl rannsókna og kennslu á sviði safnafræða, á í samstarfi við innlendar og erlendar rannsóknastofnanir og fræðimenn í safnafræðum og stuðlar að tengslum við atvinnu- og þjóðlíf. Setrið veitir einnig nemum í rannsóknanámi aðstöðu og búnað til rannsóknastarfa og veita þeim þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum.

 

Hlutverk

  • Eiga frumkvæði að og sinna rannsóknum á sviði safnafræða.
  • Sinna rannsóknartengdum þjónustuverkefnum á sviði safnafræða.
  • Efla tengsl rannsókna og kennslu á sviði safnafræða.
  • Hafa samstarf við innlendar og erlendar rannsóknastofnanir og fræðimenn í safnafræðum og efla tengsl við atvinnu- og þjóðlíf.
  • Veita nemum í rannsóknanámi aðstöðu og búnað til rannsóknastarfa og veita nemum þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum með því að gefa þeim kost á að vinna rannsóknastörf á vegum setursins eftir því sem unnt er.
  • Kynna niðurstöður rannsókna, m.a. með útgáfu fræðigreina, gangast fyrir faglegum námskeiðum, fyrirlestrum og ráðstefnum á sviði safnafræða.
  • Vera ráðgefandi á sviði safnafræða, hvort sem það er til hagsmunaaðila, stofnana, fyrirtækja eða annarra
  • Stuðla að útgáfu fræðilegra verka á sviði safnafræða

 

Hafðu samband

Rannsóknasetur í safnafræðum
Háskóli Íslands
Gimli, Pósthólf 241
Sæmundargata 2, 101 Reykjavík

Sími: 525-5496
Fax: 552-6806
Netfang: sbh@hi.is