Um panel Félagsvísindastofnunar

Panel Félagsvísindastofnunar er hópur fólks sem hefur samþykkt að taka reglulega þátt í könnunum á vegum stofnunarinnar. Í hópnum er fólk með ólíkan bakgrunn, meðal annars hvað varðar aldur, kyn, búsetu, menntun og stöðu á vinnumarkaði.

Þátttakendur fá reglulega boð um að svara könnunum á netinu. Kannanirnar geta fjallað um fjölbreytt málefni, svo sem stjórnmál, heilbrigðis- og velferðarmál, umhverfismál, samfélagsmál og þjónustu fyrirtækja og opinberra stofnana.

Hvers vegna skiptir skoðun þín máli?

Með því að taka þátt færð þú tækifæri til að koma skoðunum þínum og reynslu á framfæri. Mikilvægt er að sjónarmið fólks með ólíkan bakgrunn komi fram svo niðurstöður kannana gefi sem skýrasta mynd af viðhorfum og reynslu fólks í samfélaginu.

Svör þátttakenda hjálpa okkur að skilja betur hvernig fólk upplifir ólík samfélagsmál og hvernig viðhorf og aðstæður geta breyst yfir tíma. Niðurstöður kannana geta meðal annars nýst við rannsóknir, stefnumótun og þróun og mat á þjónustu.

Gögn úr panelkönnunum eru nýtt af rannsakendum við Háskóla Íslands og öðrum fræðimönnum, auk opinberra stofnana, félagasamtaka og annarra aðila sem leita til Félagsvísindastofnunar vegna rannsókna og kannana.

Persónuvernd og gagnaöryggi

Félagsvísindastofnun leggur ríka áherslu á persónuvernd og örugga meðferð gagna. Svör þátttakenda eru meðhöndluð sem trúnaðargögn og niðurstöður eru birtar þannig að ekki sé hægt að rekja þær til einstakra þátttakenda.

Persónuupplýsingar og rannsóknargögn eru varðveitt og meðhöndluð í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd og verklagsreglur Háskóla Íslands.

Nánari upplýsingar

Ef þú hefur spurningar um panel Félagsvísindastofnunar eða könnun sem þú hefur fengið boð um að taka þátt í er þér velkomið að hafa samband við Félagsvísindastofnun, í tölvupósti á felagsvisindastofnun@hi.is eða í síma 5254545.

Share