Evrópski netpanellinn CRONOS sem er hluti af Evrópsku samfélagskönnuninni (European Social Survey) fer ört stækkandi hér á landi. Evrópska samfélagskönnunin hefur oft verið nefnd flaggskip kannana í félagsvísindum, vegna gæða könnunarinnar. Félagsvísindastofnun hefur verið framkvæmdaraðili Evrópsku samfélagskönnunarinnar hér á landi en í þeirri könnun er svarendum boðið að gerast meðlimir í netpanelnum og þar af leiðandi vera með í áframhaldandi samstarfi þessa viðamikla rannsóknarverkefnis.
Af þeim svarendum úr 10. og 11. lotu ESS (stytting fyrir European Social Survey) hafa yfir 85% samþykkt að vera með í netpanelnum og svara fleiri minni könnunum á netinu milli ESS lota. Í þessari lotu sem nú er í gagnaöflun, lotu 12, er áfram safnað í netpanelinn og því safnað í þennan panel í þriðja sinn. Á bilinu 30-40 Evrópulönd taka þátt í ESS á tveggja ára fresti en þar af eru nú tólf lönd sem eru meðlimir í CRONOS. Ísland hefur verið meðlimur frá upphafi en nú vinna Þýskaland, Holland og Serbía að því að gerast virkir meðlimir. Núverandi meðlimir eru Austurríki, Belgía, Tékkland, Finnland, Frakkland, Ungverjaland, Ísland, Ítalía, Portúgal, Slóvenía, Svíþjóð og Bretland. Gríðarlega fjölbreyttum og mikilvægum gögnum hefur verið safnað í þessum könnunum en nú þegar hafa verið lagðar fyrir 15 kannanir á sama tíma í öllum löndum. Gögnin úr þeim eru í opnum aðgangi (https://ess.sikt.no/en/series/655615e6-8e4f-4e84-a9c9-27d24b93f866?tab=overview).
Gögn CRONOS og ESS eru gífurlega verðmæt þar sem hægt er að bera saman Evrópulönd í viðhorfum til ýmissa málefna í gegnum árin. Umfjöllunarefni CRONOS hafa meðal annars verið heimsfaraldur COVID, loftslagsbreytingar, jafnrétti, traust, stafræn notkun og gervigreind, og margt fleira.
Ísland hefur nú formlega tekið þátt í sameiginlegri umsókn til Evrópusambandsins um að CRONOS netpanellinn hljóti reglubundinn styrk eftir hverja lotu af ESS í stað þess að hvert land þurfi að sækja styrki fyrir verkefninu.