Starfsfólk Félagsvísindastofnunar hefur um árabil sinnt kennslu í rannsóknaraðferðum við Háskóla Íslands. Kennslan nær bæði til megindlegra og eigindlegra rannsóknaraðferða og spannar allt frá grunnatriðum aðferðafræði til sérhæfðari aðferða við gagnaöflun og greiningu.
Í kennslu í megindlegum rannsóknaraðferðum er meðal annars fjallað um tölfræði, framsetningu og greiningu gagna, ályktunartölfræði og aðhvarfsgreiningu. Einnig er veitt þjálfun í notkun tölfræðiforrita.
Í kennslu í eigindlegum rannsóknaraðferðum er fjallað um helstu aðferðir og rannsóknarhefðir eigindlegra rannsókna. Þar má meðal annars nefna undirbúning rannsókna, gerð rannsóknaráætlana, viðtöl og aðra gagnaöflun, greiningu gagna og framsetningu niðurstaðna.
Félagsvísindastofnun býður einnig upp á ráðgjöf, kennslu og sérsniðin námskeið fyrir stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og aðra hópa. Innihald og umfang námskeiða er lagað að þörfum þátttakenda og getur meðal annars snúið að rannsóknaraðferðum, spurningalistagerð, gagnaöflun, tölfræði og greiningu gagna.
Nánari upplýsingar um kennslu, ráðgjöf og sérsniðin námskeið veita verkefnisstjórar Félagsvísindastofnunar í síma 525 4545 eða með tölvupósti á felagsvisindastofnun@hi.is.