Um þessar mundir stendur yfir gagnaöflun í tengslum við rannsóknina VAL, sem er stór rannsókn á vegum Háskóla Íslands um ákvarðanatöku einstaklinga. Ábyrgðaraðili rannsóknarinnar er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði. Rannsókninni VAL verður hleypt af stokkunum síðar í haust.
Um hvað snýst þessi gagnasöfnun?
Tilgangur gagnaöflunarinnar er að safna hópi einstaklinga sem verða mögulegir viðtakendur greiðslna að upphæð 1.450–4.350 kr. þegar rannsóknin VAL hefst. Líkurnar á að fá greiðslu eru yfir 60%.
Viðtakendur greiðslu verða paraðir af handahófi við þátttakanda í rannsókninni VAL. Í rannsókninni tekur þátttakandinn ákvarðanir um hvernig peningum er skipt á milli hans sjálfs og óþekkts viðtakanda. Ein slík ákvörðun er síðan valin af handahófi og greidd út til bæði þátttakandans og viðtakandans.
Hvað þarft þú að gera?
Sem mögulegur viðtakandi greiðslu þarft þú einungis að gefa upp kennitölu og bankanúmer.
Þetta er gert svo hægt sé að millifæra greiðsluna ef til hennar kemur. Engar aðrar kvaðir eða skilyrði fylgja því að vera mögulegur viðtakandi, aðrar en að samþykkja meðhöndlun persónuupplýsinga eins og henni er lýst í gagnasöfnunarviðmótinu.
Hvort þú fáir greiðslu og hversu háa
Það ræðst af handahófsvali og þeim ákvörðunum sem þátttakandinn í rannsókninni VAL — sá sem þú ert paraður/pöruð við — tekur.
Hefur þetta áhrif á þátttöku þína í rannsókninni VAL síðar?
Nei. Þátttaka þín í þessari gagnasöfnun hefur engin áhrif á möguleika þína til að taka þátt í rannsókninni VAL þegar hún hefst.
Ef þú velur að taka þátt í rannsókninni VAL þegar þar að kemur munt þú taka ákvarðanir um skiptingu peninga milli þín og óþekkts viðtakanda sem hefur tekið þátt í þessari gagnasöfnun. Tryggt verður að óþekkti viðtakandinn sem þú yrðir paraður/pöruð við yrði aldrei þú sjálf(ur)/sjálft.
Fyrirspurnum um vinnslu persónupplýsinga í gagnasöfnuninni skal beina til persónuverndarfulltrúa Háskóla Íslands, Magnúsar Jökuls Sigurjónssonar, mjs@hi.is.
Fyrirspurnum um rannsóknina VAL skal beina til rannsóknarteymisins, rannsoknin.val@hi.is.
Umsjónaraðili könnunarinnar af hálfu Félagsvísindastofnunar er Helgi Guðmundsson, verkefnastjóri, heg@hi.is.