Félagsvísindastofnun
Félagsvísindastofnun er rannsókna- og fræðastofnun innan Háskóla Íslands og hefur verið starfrækt frá árinu 1985. Megin markmið stofnunarinnar hefur frá upphafi verið að annast hagnýtar og fræðilegar rannsóknir sem stuðla að því að styrkja og efla íslenskt samfélag.
Félagsvísindastofnun er með aðild að CESSDA (Consortium of European Social Science Data Archieves) sem hefur það að megin markmiði að tryggja gæði rannsókna og rannsóknarinnviða.
Félagsvísindastofnun leggur áherslu á að:
- Efla samtal rannsókna og samfélags
- Efla þverfaglegt samstarf vísinda
- Efla alþjóðlegt samstarf
- Styrkja rannsóknainnviði
Alþjóðleg samstarfsverkefni
Félagsvísindastofnun er í rannsóknarsamstarfi við alþjóðleg rannsóknarteymi og tekur þátt í evrópskum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum svo sem EVS (European Values Study), ISSP (International Social Survey Programme) og ESS (European Social Survey). Samstarfið gerir íslenskum og erlendum rannsakendum, stjórnendum o.fl., kleift að meta og bera saman þróun samfélagsmála á Íslandi í samanburði við önnur lönd og skoða afstöðu fólks til samfélagslegra breytinga.
Í 11. umferð ESS sem áætlað er að fari af stað í ársbyrjun 2024 verður afstaða fólks til ýmissa samfélagslegra málaflokka kortlögð. Þar á meðal er afstaða fólks til heilsu og félagslegs ójöfnuðar skoðuð en sá hluti könnunarinnar var fyrst kortlagður 2014/2015. Þá verða afleiðingar Covid-19 áfram skoðaðar o.fl. Nýnæmi í 11. umferð ESS er kortlagning á afstöðu fólks til kyns og endurhugsunar á jafnrétti og bakslagi.