ggs

Þann 29. júlí nk. fer fram netmálstofa um rannsóknina „Generations and Gender Survey“ (í. Könnun um kynslóðir og kyn) og hvernig hún fór fram hér á landi. Félagsvísindastofnun sá um framkvæmd rannsóknarinnar hér á landi. Um er að ræða rannsókn sem er gerð í um allan heim á nokkurra á fresti. Málstofan mun fjalla um minnkandi frjósemi á Íslandi frá árinu 2010 og mikilvægi rannsóknarinnar hér á landi. Innviðir fyrir frjósemisrannsóknir á Íslandi hafa verið tiltölulega vanþróaðir og þátttaka Íslands í þessari umferð GGS-könnunarinnar er mikilvægt skref í átt að því að byggja upp sterkari gagnagrunn fyrir frekari rannsóknir í framtíðinni. Í kynningunni verður einnig fjallað um reynsluna af könnunarferlinu, þar á meðal þann lærdóm sem draga má af framkvæmd könnunarinnar og vettvangsvinnu. Ari Jónsson, umsjónarmaður rannsóknarinnar hér á landi, verður með erindið. 

Áhugasamir geta skráð sig hér: https://www.ggp-i.org/news/general-news/ggp-connect-webinar-conducting-ggs-ii-wave-1-in-iceland/

 

Share